Farið í smá rekstur
Sunnudagur, 22. janúar 2012 12:17
21 jan
Í gær var mjög svo fallegt veður þannig að við drifum hrossin út og rákum þau ca 8 km spotta, þau hafa ávalt gaman að þessum rekstrum ásamt því hvað þetta stykir þau og eflir þol.

Svo fórum við á þorrablót í austurlandeyjum og skemmtum við okkur mjög vel. Þannig að dagurinn í dag fer mikið til í slökun.
 
Sölumót 28. Janúar
Föstudagur, 20. janúar 2012 11:17
Breki

Nú styttist í að keppnistímabilið fari af stað og en eru einhverjir ekki komnir með keppnishest til að keppa á.

Þá er tilvalið að smella sér á sölumótið á Skeiðvöllum þann 28. janúar næstkomandi og vonandi finna sér einn slíkan. Mótið verður með svipuðu sniði og síðast, allir hestar sem taka þátt eru til sölu, þrír dómarar sem gefa tölur, úrslit riðin og frábær verðlaun í boði.

Þær greinar sem keppt verður í er fjórgangur, fimmgangur og tölt T7.

Í skráningu skal koma fram IS-númer og nafn hests, litur, faðir, móðir, verðflokkur, keppnisgrein, knapi og umráðamaður ásamt upplýsinum um símanúmer og netfang seljanda og svo afrekaskrá ef seljandi vill. Skoðið einnig nýja síðu sem sett var upp í sambandi við þetta sölumót, þar munu síðan einnig verða allar upplýsingar sem þið þurfið að vita og slóðin er southhorses.weebly.com.

Þeir sem skrá geta einnig sent mynd,stutta lýsingu af hestinum og link á vídeó (ef það er til) og hesturinn verður einnig skráður inn á heimasíðuna.

Skráning er hafin á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og lýkur mánudagskvöld 23.janúar kl 23:59. Skráningargjald er 3000 kr og greiðist inn á 586-14-402187 kt.291169-5389 um leið og skráð er.

Skylt er að skrá hrossið í verðflokk. Verðflokkarnir eru eftirfarandi:

§           0-600.000

§           600.000 – 1.200.000

§           1.200.000 – 1.800.000

§           1.800.000 – 3.000.000

§           3.000.000 +

 
Ýmsar myndir
Sunnudagur, 15. janúar 2012 10:56
myndir 2012

Nú er búið að setja fleiri myndir inn í myndasafnið undir myndir. Þar er að sjá allar tegundir af myndum. Endilega kíkið á þær.
 
Folald tekin inn
Fimmtudagur, 12. janúar 2012 12:30
folald


Nú er jólin búin og allt komið á fullt í tamningum og þjálfun. Veðrið hefur nú ekki verið það allra besta og reiðhöllin komið sér mjög vel. Í gær og í dag hefur reyndar verið frábært veður og það hefur verið nýtt til hins ýtrasta.
Tókum einnig nokkur folöld inn á hús, frá merum til að venja undan þeim, settum einnig folöld út sem hafa verið inni sem voru frelsinu fegin og léku sér af fullum krafti.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 12
Icelandic (IS)Danish(DK)English (United Kingdom)
juli 046.jpg

Ólafur Þórisson gsm: 8637130
Sarah M. Nielsen gsm: 8463918
Miðkot, heimasími: 4878592
netfang: midkot@emax.is